Eitthvað ætlar það að ganga treglega...

...að viðhalda færslum hingað inn Pouty

En hvað sem því líður þá er samt merkilegt hvað tíminn frá síðasta bloggi hefur verið, þannig séð, rólegur... (er ekkert að pæla í öllu þessu krepputali, nema þá kannski það sé bloggkreppa í gangi hjá mér? Tounge). Hef verið að vinna og dæma lítið eitt í handboltanum (nokkuð sem gæti verið mun meira af, segi ekki meira núna...), svo nokkrir Futsal leikir, tók tvo æfingaleiki í 11 manna boltanum fyrir jól og svo auðvitað reynt að hitta á vinina þegar færi gefst. Að við minnumst nú ekki á jólaboðið góða á jóladag sem var æðislegt eins og alltaf LoL

Hins vegar hef ég komist að þeirri niðurstöðu að það á alls ekkert við mig að vera meiddur! Hef verið með þessa leiðinda beinhimnubólgu í hægri fæti síðan í haust og núna finnst mér eins og sama helvítið sé að byrja í þeim vinstri! Ekki sniðugt...
Fór þó að pæla í því núna áðan (er í vinnunni btw ef einhver horfir á tímann á færslunni...) hvort þetta gæti nokkuð stafað af skómálunum mínum... en ég fékk mér umbro takkaskó í sumar og notaði þá eitthvað... og svo eru hlaupaskórnir mínir orðnir frekar mikið slitnir núna, þannig að ég er búinn að fá mér nýja, gerði það í dag Smile Þá veit ég vel að ég þarf nýja skó í innanhússboltann, hvort sem um Futsal eða handbolta er að ræða, en ég skoða þau mál aðeins betur seinna... hugsanlega í næstu viku.
Er samt ekki sáttur við það að geta ekki farið út að hlaupa eins og ég var farinn að vera nokkuð vanur að gera (þó það hafi kannski ekki verið neitt hrikalega reglulega...), hvað þá lenda í því að geta ekki tekið KSÍ-þrekprófið almennilega! Ég veit það þó að við þessi meiðsli hafa æfingarnar hjá mér minnkað helling, enda ekki hægt að æfa hvernig sem er (og ég hef líka verið latur við það), en þegar manni er fyrirskipað að hvílast í mánuð eða tvo frá hlaupum, missir maður dampinn frekar fljótt og svo maður minnist ekki á hlaupaþolið...

En hvað um það, nýtt ár komið og með því bjartari tímar sem maður á að nýta sér, reyna að koma sér aftur af stað og bæta formið, hrista þessi leiðinda meiðsli af sér og mæta tvíefldur til leiks í sumar!

Kalla þetta gott í bili, meira þegar mér dettur það í hug.


Eitt tímabil búið, annað rétt að hefjast og ég meiddur...

Já, þá ætti fótboltatímabilinu hjá mér að vera lokið, enda 1. og 2. deildir karla búnar, efsta kvenna búin og flest allir yngri flokkarnir.
Reyndar eru eftir 1 umferð í efstu deild karla þegar deginum líkur (næstsíðasta umferðin er að spilast núna...) og ég er nokkuð örugglega ekki að starfa þar Smile Kláraði nú samt tímabilið á nokkuð þægilegan hátt í Reykjaneshöllinni í gær, þurfti að minnsta kosti ekki að vera úti í veðrinu, slapp við alla rigninguna Tounge

Svo er handboltatímabilið að byrja, fyrstu umferðirnar í meistaraflokkunum að klárast og forkeppnir yngri flokka í fullum gangi, þar sem ég hef aðeins verið að flauta undanfarið.
Og svo til að toppa allt saman að þá er ég kominn á þennan margfræga meiðslalista... beinhimnubólga takk fyrir og því ekkert að gera annað en að hvíla! Ja... að minnsta kosti reyna eins og kostur er að forðast öll hlaup, þó maður geti nú alveg æft sig eitthvað. En það þýðir líka engir leikir í 2-3 vikur, vonandi... ég hef hingað til aldrei verið sá skynsamasti í þessum málum, en vonandi tekst mér að halda mig utan leikja á meðan ég næ mér af þessum meiðslum, lágmark að það verði ekki óþægilegt að labba eða keyra Cool

En hvað um það, er kominn með fasta vinnu í vetur, verð uppi við Hellisheiðarvirkjun í vetur og svo er skólinn með, sem hefur farið þokkalega af stað, ég var að minnsta kosti fljótur að ná upp þeim verkefnum sem mér tókst að missa af Halo En námskeiðið leggst bara vel í mig og virkar bara mjög áhugavert.

Svo gerðist ég bíræfinn í síðustu viku... ég skráði mig á gítarnámskeið LoL Það verður fróðlegt að sjá hvernig ég tækla það, en mig hefur lengi langað til þess að geta glamrað eitthvað, jafnvel spilað, á gítar Smile

Jæja, þetta ætti að vera ágætis öppdeit hjá mér í bili... næsta vika geymir ekkert nema vinnu, skóla, skóla og búdkamp Tounge Bara stuð Wink


Já, já, já... ég veit...

...ég hef verið fáránlega latur við að blogga síðustu mánuði (held ég að sé óhætt að segja). En nú skal reyna að bæta úr því að einhverju leiti...

Síðan síðast hefur s.s. nóg gerst og átti ég eftir að ræða eitt og annað...

Fyrst ber að nefna að ég fór í brúðkaup til frænda míns í Eyjafjörðinn, sem var bara snilld!
Það var leigður heill bóndabær undir allt liðið sem mætti með tjaldvagna, fellihýsi, nú eða bara gömlu góðu tjöldin og slegið var upp tjaldbúðum við hlöðuna, þar sem veislan fór svo fram. Brúðkaupið sjálft, þ.e. athöfnin, var svo í kirkju í um 10 mínútna fjarlægð og var athöfnin sjálf alveg í anda frænda míns (og víst konunnar hans líka), snöggt og einfalt, voru pússuð saman án alls auka skrauts Wink
Svo var haldið aftur að sveitabænum þar sem myndarleg íshrúga (á miðju sumri) var þessi líka fíni kælir fyrir drykki af ýmsu tagi...
Vitaskuld létu brúðhjónin aðeins bíða eftir sér, enda lá leið þeirra fyrst í myndatöku áður en mætt var í veisluna. Þegar allir voru svo búnir að finna sér sæti í hlöðunni hófst maturinn sem var ekki af verri endanum, þetta fína lamb, auðvitað grillað á staðnum. Svo voru ýmis skemmtiatriði og svo var tjúttað og trallað fram á rauða nótt (þó það hafi nú varla dimmt neitt að viti, enda nokkuð stutt frá sumarsólstöðum, þótt í júlí væri komið). Sjálfur skreið ég aftur inn í í tjaldvagninn um 8-leytið eftir frábæra nótt LoL Heilmikið var dansað, sungið, trallað og spjallað, allir virtust skemmta sér vel og það er auðvitað aðalatriðið í svona samkomum Wink Ekki skemmdi góða veðrið fyrir! Heiðskýrt alla helgina og frábærar aðstæður!
Svo var ræst um 11-leytið (sem þýddi um 3 tíma svefn) og farið að taka til eftir kvöldið og nóttina, auk þess að pakka saman fyrir ferðina heim. Ég hefði þó alveg verið til í að ná að sofa ögn meira í bílnum á leiðinni heim fyrst ég var ekki að keyra Halo

En núna var ég að fara frammúr sjálfum mér... ég byrjaði auðvitað á því að stelast austur til Eskifjarðar, með gistingu á Egilsstöðum... var næstum því búinn að steingleyma því! Fór sem sagt fljúgandi til Egilsstaða á fimmtudegi ásamt félaga mínum til þess að dæma leik á Eskifirði og tíndum við upp þriðja manninn á Egilsstöðum og skunduðum austur, í þessu líka fína veðri. Leikurinn gekk svona ágætlega en höfum ekki fleiri orð um hann...
En fyrst leikurinn var á fimmtudagskvöldi, þýddi það að við tveir úr bænum þyrftum að gista fyrir austan og fengum við því inni á Hótel Héraði á Egilsstöðum, sem var bara hið besta mál. Vitaskuld var ölstofan hertekin af okkur um kvöldið, en það fylgir bara slíkum ferðum... svona oftast nær Halo
En setan þar var nú ekki of löng enda beið okkar morgunflug heim til Reykjavíkur, með morgunverði á hótelinu þó fyrst. Náðum svo vélinni heim með glans og komum endurnærðir aftur í stórborg Íslands!

Svo fékk ég auðvitað leik að kvöldi heitasta dags sumarsins, hins 28. júlí þar sem hvert hitametið á fætur öðru var slegið hérlendis!
Byrjaði þann dag þó á því að skjótast með Elíasi og Árna bróður hans til Þorlákshafnar í smá golf, eða léttar 18 holur í glampandi sólskini, alltof miklum hita (miðað við Ísland auðvitað) og heitum vindi! Sem gekk nú bara ágætlega... þó maður hefði nú alveg getað verið sáttari eftir á Tounge
Skellti mér svo yfir í Suðurbæjarlaug þegar ég var kominn aftur í Hafnarfjörðinn og lá þar í sólbaði í tæpa tvo tíma eða svo þar sem hitamælirinn við laugina sýndi hvorki meira né minna en 30°C hita! Enda var laugin líka nánast troðin af fólki... og útiklefarnir eru auðvitað bara snilld á svona dögum Wink
Um kvöldið var svo komið að því að skella sér á Vodafone-völlinn þar sem mín beið leikur Vals og Fjölnis í Landsbankadeild kvenna, sem gekk mjög vel fyrir sig þrátt fyrir mikinn hita (þó ekki í leikmönnum) en annars frábærar aðstæður, fékk meira að segja athugasemd eftir leikinn um hversu rauður ég væri orðinn í framan og á kollinum... (hver notar sólarvörn hérna heima annars?).

Ágústmánuðurinn var svo jú bæði rólegur og þó ekki. Annað brúðkaup sumarsins var helgina eftir verslunarmannahelgina og var nóg að gera þann daginn... Byrjaði á því að fara í jarðarför afabróður míns, sem ég þekkti varla neitt, þar sem ég fylgdi, ásamt pabba og frænda mínum, afasystur minni í athöfnina svo hún kæmist til að kveðja bróður sinn Smile Enn léku veðurguðirnir við hvurn sinn fingur og hefði ekki verið hægt að biðja um betra veður, passlega hlýtt og mátulega skýjað þannig að manni leið vel.
Fylgdi svo afasystur minni líka í brúðkaupið sem var ekki svo löngu á eftir jarðarförinni, en henni gafst auðvitað kostur á að skjótast heim í millitíðinni og hvíla sig ögn. En báðar athafnirnar voru mjög fallegar og yndislegar í alla staði. Í það minnsta brosti hún afasystir mín alveg útað báðum eyrum þegar við bræðurnir keyrðum hana svo aftur heim eftir brúðkaupið Smile
Svo tók við veisla á Hótel Örk sem stóð til miðnættis og þá var komið að því að koma foreldrunum heim, bæði mínum og svo foreldrum brúðarinnar, þ.e. systur hans pabba og manni hennar. Við bræðurnir skiptum þessu bróðurlega á milli okkar Wink
Þegar ég var svo kominn heim á Selfoss fékk ég svo smáskilaboð og í framhaldi af því ákvað ég að slá til og skella mér í bæinn, upphaflega rétt til að skutla vinkonu minni og vinkonu hennar á djammið, en á endanum til að djamma ögn sjálfur Tounge endaði á því að vera um 3 tíma í miðbænum og var loks kominn aftur heim á Selfoss um 6-leytið, bara stuð.

Fór á Vestfirðina helgina eftir það, náði að stela mér leik í 3. deild karla á Ísafirði á laugardeginum og fékk fluginu heim breytt til sunnudagsins, þannig að ég gat skotist í heimsókn í leiðinni, en svo heppilega vildi til að mamma, pabbi og brósi voru einmitt fyrir vestan að heimsækja systur og bróður mömmu Wink Hef ekki kíkt í heimsókn þangað síðan 2001! Það er naumast hvað tíminn líður hratt... maður gerir sér varla grein fyrir því lengur...
Kann þó alltaf vel við mig fyrir vestan, mætti gera mun meira af því að fara þangað. Svo fékk maður smá útsýnisflug yfir Hnífsdal og Ísafjörð á leiðinni heim, bjóst ekki við þeirri flugleið Tounge

Aftur skrapp ég svo til Eskifjarðar á afmælisdaginn minn, þann 23. ágúst, og komst þar með úr rigningunni í Reykjavík yfir í sólina á Austurlandi, ekki slæm skipti þar LoL
Dagurinn gekk svo bara þræl vel fyrir sig, rigningin var að mestu hætt þegar ég kom aftur í bæinn og himininn var auður þegar kom svo að flugeldasýningunni um kvöldið, sem hófst á slaginu 23:08:08 Cool
Eftir flugeldasýninguna var svo ætlunin að kíkja ögn í bæinn með henni Svönu sem var jú gert... en eitthvað var mér ekki ætlað að fá að skemmta mér svona í lok dagsins... er nokkuð viss um að hafa borðað eitthvað skemmt fyrir austan Frown En kom í sjálfu sér ekki það mikið að sök þar sem maður fór bara þeim mun fyrr heim (en samt nokkurn veginn í takt við fyrirfram ákveðinn tíma) og í háttinn, til þess að ná að vakna til að rölta út á Ásvelli í morgunsárið til að horfa á úrslitaleikinn í handbolta á Ólympíuleikunum! Sem fór ekki alveg eins vel og hann hefði getað en það er önnur saga og margsögð.

Þá er skólinn að troða einni tá inn þessa dagana, en ég tek bara eitt fag fyrir áramót og annað eftir áramót, er að hægja aðeins á mér og vonast til að endurvekja áhugann á þessu blessaða námi... einhverja aðgerða er víst þörf!!!

Annars sit ég núna í rólegheitunum og öfunda hana Svönu aðeins fyrir að vera á leiðinni til Minneapolis á morgun... ásamt systur sinni reyndar en samt Tounge
Vona hins vegar bara að þær skemmti sér frábærlega úti Wink Þær eiga það skilið systurnar!

En núna er komið nóg af rausi í bili... held að mér hafi tekist að gera grein fyrir öllu því sem á þarf að halda síðan síðast...
Svo er bara að vona að maður verði duglegri við að koma með ýmsar pælingar hingað inn hér eftir!


Fyrr má nú aldeilis fyrr vera!

Heyrðiði... úps! gleymdi mér aðeins Tounge  en það er víst kominn tími á að segja eitthvað aðeins smá frá Flórída Smile

Ja... ferðin byrjaði auðvitað í Leifsstöð eins og flestar aðrar utanlandsferðir, fyrir utan stutt stopp hjá frænku minni og manninum hennar, sem gáfu okkur nokkrar hagnýtar upplýsingar um Orlando og nágrenn.
Flugið út  gekk svo bara ljómandi vel, svo gott sem engin ókyrrð. Komum svo á Sanford-flugvöll og fengum þar fyrstu kynni af Bandaríkjunum og jú, Ameríkaninn er sérstakur, ekki bara fyrir þetta I-94 blað sem maður þarf að fylla út til að komst inn í landið, heldur bara allt... er eiginlega alveg eins og maður sér í kvikmyndunum, allir öryggisverðir vopnaðir og voða varir um sig eitthvað...
En vá! Þegar ég steig svo út úr flugstöðinni maður... hitinn og rakinn! Bjóst ekki beint við því að fara að svitna við það eitt að standa úti... það fór líka um vika í að venjast hitanum Wink Fórum svo í að sækja bílaleigubílinn og koma okkur af stað.
Fyrstu nóttina gistum við á hóteli í Orlando, fengum mun betra herbergi en við héldum að við fengjum... en guð sé lof fyrir loftkælingu LoL

Annar dagurinn fór svo í að fá lyklana að húsinu sem við gistum svo í, fylgt eftir með því að finna húsið og skoða það, sem var einnig mun stærra og jú flottara en við bjuggumst við Tounge En það er með einkasundlaug og skordýraneti yfir, þannig að maður getur legið óáreittur í sólbaði Cool

Fyrsta vikan fór svo bara í sólböð og ferðir í mall-in, Orlando's Premium Outlets, Florida Mall og hinar og þessar búðir Halo En já, vikan fór samt að mestu í að venjast loftslaginu Smile

Aðra vikuna fórum við svo í Disney World Wizard Magic Kingdom, bara fjör Cool Fengum frábært veður, en hitinn fór yfir 30°C alla dagana!
Fengum svo ekta þrumuveður tvisvar í ferðinni, með fullt af eldingum og þrumum og hellidembum! Keyrðum t.a.m. heim í þrumuveðri frá Appel Bee's eitt kvöldið Grin

Fór svo tvisvar í golf á fínum golfvelli skammt frá ásamt litla bróður, við skemmtum okkur bara ágætlega þar, enda í sól og blíðu að spila... og hita!

Við kíktum svo aftur í Disney World síðustu vikuna, en í þetta skiptið í Disney's Hollywood Studios, aðeins annar hluti af svæðinu en gaman að skoða engu að síður og aftur í frábæru veðri.

Ja... fórum annars ekkert mikið meira að skoða úti, vorum mest megnis bara við laugina að njóta sólarinnar, með það að markmiði að næla sér í smá lit Wink

Fórum svo heim í góðu skapi, þó svo við vissum að okkar biði nóg að gera heima fyrir, en ferðin heim gekk jafnvel betur en ferðin út. Vorum í vél með nýju sætunum sem hafa sér skjá fyrir hvern farþegaCool Bara snilld.

Nutum þess svo að koma heim í kuldann og rigninguna (eins og íslenska veðrið er oftast nær  Tounge )

 

En ég verð að reyna að standa mig betur... það tók mig alltof langan tíma að troða þessu hingað inn...
Reyni svo fljótlega að greina frá ferðalögum síðustu viku, þar sem ég skaust til Eskifjarðar og í Eyjafjörðinn Cool


Já ég er kominn heim

...sól slær silfri á voga, sjáið jökulinn loga.

Svo sannarlega eru jöklarnir dásamleg sýn þegar maður snýr aftur heim úr hitanum og sólinni suður í höfum, þó ég hafi nú ekki verið á ströndinni í þessari reisu (það var of langt þangað).
Hins vegar er gott að vera kominn heim aftur, þó það hafi vissulega verið gott úti í sólinni, liggjandi í sólbaði lesandi góða bók Cool
Hvað þá hressandi heimsókn í Disney World, fyrst í Magic Kingdom og svo Disney's Hollywood Studios, bara snilld LoL auðvitað í góðu veðri, hvað annað!

Þetta verður þó ekki meira að sinni, er enn vakandi frá því í fluginu í gær (sem lenti í morgun) þannig að það líður að háttatíma fljótlega, ekki löngu eftir að EM er búið í kvöld... 


Ég er farinn út!

Hljómaði í einhverju laginu með honum Ladda að mig minnir...

Hins vegar styttist óðum í brottför til Flórída, fjölskyldan leggur af stað núna frá Selfossi um hádegisbil eftir því sem plön ráðgera (og ég fer auðvitað með þaðan) og framundan er ein heimsókn hjá frænku minni og svo er næsta stopp Flugstöð Leifs Eiríkssonar!
Takk fyrir og góðan daginn!!! Fyrst núna í gærkvöldi fór kvíðinn og spenningurinn að gera almennilega vart við sig... er þó svo gott sem búinn að pakka öllu því sem ég ætla að hafa með mér niður í tösku og er bara nánast alveg tilbúinn í slaginn, aldrei þessu vant.

Ég reyni jafnvel svo að koma inn einni og einni færslu hingað á meðan ég er úti, enda alltaf gaman að geta blaðrað eins og vitleysingur á blogginu, sérstaklega fyrst frekar fáir nenna að lesa Tounge

En ég kalla þetta gott í bili, mín bíður stefnumót við 757 vél Icelandair á eftir LoL

Yfirsig spenntur en jafnframt kátur,
Andri Cool


Nú er komið nóg!

Af þessari leti í mér... Ætlaði að vera löngu búinn að henda inn nýrri færslu hingað en af einhverjum ástæðum hefur það farið fyrir ofan garð og neðan alltof oft...

En síðan ég asnaðist síðast til að pára eitthvað hingað inn hef ég skroppið uppá Esjuna, eða Þverfellshorn til að það sé nákvæmara, klárað skólann í bili, vinna fyrstu heilu vinnuvikuna og sitthvað fleira, nema þó ekki enn búinn að dæma leik í fótboltanum eftir að Íslandsmótið hófst... en það reddast núna í vikunni Cool

Svo styttist óðum í að maður yfirgefi klakann og haldi á suðlægari slóðir, alla leið til Flórída LoL Úff... það er bara vika í að maður verði kominn uppí flugstöð! W00t Kræst... er ekki alveg að ná þessu, of stutt í þetta...

Vá... það stendur allt fast í kollinum núna... ekkert að komast í gegn, þoli ekki svona ástand. Á alveg að geta komið þessu frá mér Tounge

En hvað svo sem því líður... það styttist óðum í sólarferðina, svo tekur vinnan við eftir að maður kemur heim aftur, auk fótboltans auðvitað Wink
Hins vegar ætla ég að láta þetta gott heita í bili, en reyni að koma meiru frá mér áður en langt um líður... 


Ég er lukkunnar pamfíll, svei mér þá...

Nú liggur sko aldeilis ljómandi vel á mér, búinn í skólanum (í bili) og allt sumarið framundan! Þó það fari að mestu í vinnu, þá er samt allt sumarið framundan Smile
Kláraði semsagt síðasta (og reyndar eina) prófið mitt núna í morgun og hef bara verið að slaka á síðan þá, enda veitir mér ekkert af, er á leiðinni uppá Þverfellshorn í kvöld Wink Verður fínt að komast aðeins út og rölta upp Esjuna.

Fór annars á laugardaginn norður á Akureyri og lenti þar í brakandi blíðu og sól Cool Framundan var svo leikur í N1 deild kvenna á milli Akureyrar og Gróttu í KA-heimilinu. Leikurinn gekk bara nokkuð vel, kannski full harður á köflum í seinni hálfleik en ekkert sem við félagarnir réðum ekki við, vorum bara nokkuð sáttir í leikslok og vitum alveg hvað þarf að bæta, bara verst að fá ekki krítík í upphafi tímabilsins... hún gagnast frekar lítið í síðustu umferð, en fer bara í reynslubankann og nýtist í upphafi næsta handboltatímabils.
Komum svo suður aftur í rjómablíðu en kannski ögn meiri vind heldur en fyrir norðan, ekki að ég sé að kvarta þó LoL Það var ljómandi gott veður á laugardaginn, svona í það heila.

Annars fór helgin og dagarnir tveir fyrir helgi í vinnu, sem var svo sem ágætt, tók svo auðvitað til við að lesa eins og ég kom að (og nennti... Whistling) fyrir prófið sem var í morgun.

En jæja... mikið er ég feginn því að vera laus við skólann fram að haustinu, þó það verði nú ekki mikill skóli þá gangi allt eftir sem ég er að velta fyrir mér, en skóli samt.
Ætli það sé samt ekki best að fara að huga að því hvar allt er sem ég þarf með mér á Esjuna, eins mikið og það nú er... Halo


Kannski...

Maður eigi að reyna að hlusta á það sem vinirnir hafa að segja (væl, kvörtun, athugasemdir, brandarar... þið skiljið alveg) og hugsanlega reyna að fara eftir því líka... í hófi Halo

Annars finnst mér það hálf óþægilegt að ætla mér að skella inn færslu með of stuttu millibili, en kannski er það sjálfum mér að kenna fyrir að hafa valið útlit á síðuna sem veitir frekar vítt textarými... það á þó þvert á móti að hafa nokkur áhrif á reglulegar færslur.

Hvað svo sem því líður, vikan fer rólega af stað, enda lítið að gera svona alveg í upphafi, reyni bara að halda augunum opnum yfir (mis)léttum prófalestri, enda próf í næstu viku svo það veitir nú ekki af að lesa fyrir það...
En svo fer að færast aðeins meira fjör í leikinn núna. Framundan í kvöld er Herrakvöld FH, þar sem ég kíki víst aðeins við en verð þó varla mikið lengur heldur en dagskráin stendur, enda bíður mín svo vinna í fyrramálið Smile

En jæja... þó svo að vinna og herrakvöld bíði mín, þá jafnast það ekki á við enn eina ferðina norður, sem er á planinu núna á laugardaginn. Til hvers? Jú, til að fara í enn einn deildina í kvennaboltanum... (hvað er þetta með enn einn þetta, enn eitt hitt?). Verður engu að síður vonandi skemmtileg ferð og vel heppnuð.

Og svona rétt í lokin, bara fyrir þig Svana... þá efast ég um að ég fari í sumar til Bahama-eyja, Bahama-eyja, Bahama-eyja, Bahama.... Bahama-eyja... LoL


Stundum...

dettur mér bara alls ekkert í hug til að skella hingað inn, þó maður ætti að hafa nóg til að blaðra um.

Síðasta vika var í heildina frekar róleg, lítið að gera, kíkti í skólabækurnar svona öðru hvoru, fór jú í þrekpróf á mánudaginn (sem er farið að verða frekar fastur liður í tilverunni undanfarið...) og svo í fermingarveislu á fimmtudaginn (sumardaginn fyrsta) sem var hin mesta skemmtun. Hitti þar á fjölda ættingja sem maður sér alltof sjaldan (verð víst að taka eitthvað af sökinni á sjálfan mig í þeim efnum) þó ekki hafi allir mætt sem boð fengu.

Helgin bar þó af vikunni, enda byrjaði hún á ferð í Borgarleikhúsið þar sem ég fór að sjá Jesus Christ Superstar, sem er fín sýning, nokkuð vel leikin en persónulega finnst mér sem söngurinn gæti verið ögn betri... Halo þó svo að allir leikarar/söngvarar hafi staðið sig með prýði. Stórskemmtileg sýning.

Helgin sjálf fór svo í landsdómararáðstefnu hjá KSÍ sem var að mestu haldin á Hótel Örk að þessu sinni, fengum fyrirlesara frá Danmörku (sem talaði þó á ensku nema í 2-3 skipti þegar hann gleymdi sér og byrjaði að ræða við hópinn á dönsku, allt þar til hann áttaði sig og uppskar lófaklöpp og mikinn hlátur í hvert sinn), gesti frá Færeyjum sem sátu ráðstefnuna, íslenskan næringarráðgjafa auk dómaranefndarinnar okkar góðu.
Skemmtiatriði voru svo á laugardagskvöldinu og misstutt bæjarferð, reyndar eftir heimsókn í Hellisheiðarvirkjun (bíddu nú við... eitthvað kannaðist ég við mig þar... Whistling) sem var ágæt, það hefur all nokkru verið breytt síðan ég kom þar síðast...
Síðan var misgóð mæting í það sem mér skildist að væri skyldusund á sunnudagsmorgni, þar sem ég mætti auðvitað. Sunnudagsdagskráin gekk svo það vel að við vorum komnir í bæinn á þeim tíma sem við áttum að vera að leggja af stað frá Hveragerði.

Framundan er svo upphaf vinnusumarsins, enn ein ferðin norður (um helgina) og svo próf á mánudaginn... þannig að vikan verður bara nokkuð... ja... já, hún verður bara nokkuð.

Læt þetta gott heita í bili... fer að bulla of mikið haldi ég áfram... 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband